Þessi skilmáli gildir um sölu á vöru og þjónustu Icephone ehf til neytenda.
Skilmálinn, sem staðfestur er með staðfestingu á kaupum, er grunnurinn að
viðskiptunum.
Skilmálinn og aðrar upplýsingar á www.icephone.is eru einungis fáanlegar á
íslensku.
Um neytendakaup þessi er fjallað um í lögum um neytendakaup, lögum um
samningsgerð, lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, lögræðislög og
lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
- Skilgreining
Seljandi er Icephone ehf., kennitala: 660314-0240, virðisaukaskattsnúmer 116569.
Icephone ehf. er skráð í Firmaskrá Íslands.
Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikning. Kaupandi verður að vera
orðinn að minnsta kosti 16 ára til að versla í Vefverslun Icephone ehf. - 30 daga skilaréttur
Kaupandi getur skilað vöru keypt af seljanda innan 30 daga, valið nýja eða fengið
hana endurgreidda að fullu. Við skil á vöru þarf hún að vera í upprunalegu ástandi,
þ.e. í sama ástandi og hún var seld. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að
varan sé í lagi, þó innan eðlilegra tímamarka. Seljandi áskilur sér rétt til þess að
koma í veg fyrir alla misnotkun á 30 daga skilarétti.
2.1 Gildir fyrir allar vörur.
- Ábyrgðarskírteini, kaupnóta eða gjafamiði skilyrði fyrir vöruskilum
- Ekki er skilyrði að varan sé ónotuð
- Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi
- Icephone ehf áskilur sér rétt til að prófa vöruna ef þörf krefur innan eðlilegra
tímamarka - Endurgreiðsla getur lækkað eða verið neitað ef varan er ekki í sama ástandi og hún
var keypt.
- Auglýsingavernd
Ef vara sem hefur verið auglýst er uppseld þá útvegar seljandi hana innan eðlilegs
afhendingartíma, sem getur verið allt að 30 dagar. - Pöntun
Pöntun eru bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda. Það gerist þegar
kaupandi hefur staðfest pöntun og sett inn greiðsluupplýsingar á vefsíðu Icephone
ehf.
Seljandi er einnig bundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í
samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um að brögð
séu í tafli og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar.
Kaupandi hefur rétt á að rifta kaupum samkvæmt lögum um neytendakaup, sjá nánar
í grein 11.
Seljandi sendir kaupanda staðfestingu þegar pöntun er skráð, þó aðeins ef að
kaupandi hefur skráð netfang sitt við kaupin. Kaupanda er bent á að kynna sér
gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst. Einng ætti að ganga úr skugga
um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun.
Frávik frá pöntun og pöntunarstaðfestingu skal túlkað sem nýtt tilboð frá seljanda
sem að hægt er að afþakka eða samþykkja. Kaupandi hefur einnig rétt til að láta
upprunalega pöntun gilda svo lengi sem hún er í samræmi við það sem seljandi
bauð upp á.
- Upplýsingar
Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni. Seljandi birtir allar
upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í
texta, verðum og myndum.
Vöruúrval getur verið mismunandi á milli vefverslunar og verslana.
Ennfremur áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun
kaupanda ef að varan er uppseld. Undir þeim kringumstæðum fær kaupandi
tilkynningu ásamt upplýsingum um hvað gæti mögulega hentað í staðinn. Kaupandi
fær þá möguleika á að samþykkja þá tillögu eða aflýsa pöntun í heild sinni. - Verð
Verð eru á stöðugum breytingum hjá seljanda vegna samkeppni og verðbreytinga
birgja. Verðhækkanir sem verða eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það
verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á
pöntunarstaðfestingu..
Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega. Þar
er tekinn fram allur kostnaður við pöntun s.s. þjónustu, sendingu o.s.frv. Aðeins
sértilfelli geta haft með sér aukakostnað eftir pöntunarstaðfestingu. Sem dæmi má
nefna eru bilanir, vírusar, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og
myndum.
Nettilboð gildir eingöngu þegar vara er keypt í vefverslun Icephone ehf. Almennt verð
sem gildir í verslun Icephone ehf er birt sem verð áður. - Greiðsla
Hægt er að inna greiðslu af hendi með bankamillifærslu, greiðslukorti eða
skuldfærslu á viðskiptareikning. Ef greitt er með greiðslukorti eða skuldfærslu á
viðskiptareikning er upphæðin skuldfærð við afgreiðslu pöntunarinnar af lager. Ef
greiðsla fyrir vefpöntun berst ekki innan 1 klukkustund, áskilur seljandi sér rétt til að
aflýsa pöntuninni. Ef greitt er með bankamillifærslu er pöntun sett í tiltekt þegar
millifærsla hefur verið staðfest af starfsmanni.
Vandamál með viðskipti tengd viðskiptareikningi falla undir skilmála reiknings.
- Afhending og seinkun
Afhending telst vera innan eðlilegra tímamarka frá útgáfudegi reiknings. Tekið er
fram í kaupferlinu hverju má búast við miðað við valda sendingarleið. Seljandi
afhendir vörur einungis innan Íslands.
Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um
hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar eða bjóða staðgengilsvöru ef að varan
er uppseld.
Ef óskað er eftir að geyma ósótta vöru í vöruhúsi ELKO er geymslutími að hámarki 2
vikur, ef óskað er eftir að geyma vöru lengur en það er krafist mánaðarlegt
geymslugjalds sem um nemur 5% af upphæð vörunnar. - Yfirferð á vörum
Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í
samræmi við pöntunarstaðfestinguna, hvort eitthvað hafi skemmst í flutningi og að
allar vörur séu samvkæmt vörulýsingu og ógallaðar.
Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar
og/eða handbók sem fylgja keyptri vöru við afhendingu,.
Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 30 daga. Eftir 30 daga áskilur
seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka
áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda. Í flestum tilfellum felur það í sér
athugun hjá viðurkenndum þjónustuaðila. - Réttur við galla eða vöntun
Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða
kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum
hvaða leið er valin hverju sinni.
Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Mælt er með að
tilkynningin berist innan 7 daga frá því galli uppgötvast. Vegna skráningargildis er
mælt með að að kaupandi sendi tölvupóst um gallann og geymi afrit. Seljandi sendir
staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins.
Réttur neytenda (með neytenda er átt við einstakling utan atvinnustarfsemi) til að fá
galla bættan er í samræmi við neytendakaupalög nr. 48/2003.
Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra
tímamarka.
Seljandi fríar sig allri ábyrgð ef varan hefur verið skemmdur í höndum kaupanda. - Ábyrgð (Waiting to hear from lawyer regarding warranty on used
phones )
Ábyrgðir seljanda hafa ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem kveðið er á um í
lögum um neytendakaup. Ábyrgð vegna galla á vöru er í samræmi við
neytendakaupalög 48/2003 og miðast við kaupdagsetningu til einstaklinga utan
atvinnustarfsemi. Ef um ræðir sölu á vöru til fyrirtækis (atvinnustarfsemi) er ábyrgð
samkvæmt lögum um lausafjárkaup lög nr 50/2000. Nýr sími, keyptur af einstaklingi
hefur 2 ára ábyrgð framleiðanda og 1 ár ef hann hefur verið keyptur af fyrirtæki.
Icephone ehf selur notaða síma og ábyrgist síma sem eru eldri en 2 ára í 6 mánuði.
Ef sími er yngri en 2 ára og með bilun sem má rekja til framleiðslugalla þá ber að
leita til framleiðanda tækisins. Ef galli leynist í varahlutum sem Icephone ehf hefur
notað til að gera upp notaðan síma þá ábyrgist Icephone ehf þá varahluti í 6 mánuði.
Ábyrgð er ekki staðfest nema að kaupnótu sé framvísað.
Ábyrgð fellur úr gildi ef tækið hefur verið opnað eða átt hefur verið við það án
yfirumsjónar/samþykkis seljanda þrátt fyrir að þar hafi verið að verki verkstæði
og/eða viðurkenndur aðili. Ábyrgðin fellur einnig niður ef rekja má bilun til illrar eða
rangrar meðferðar. Ekki er ábyrgð á hugbúnaði eða öðrum óáþreifanlegum hlutum
(hlutum sem hafa áhrif á eiginleika tækisins eins og vírusar og annað sem ekki er
hægt að rekja til framleiðanda).
Seljandi er ekki skuldbundinn til að taka þátt í viðgerðarkostnaði, gefa afslætti, skipta
út vöru o.s.frv. eftir að ábyrgðartíma lýkur.
Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að galli eða bilun heyri undir
ábyrgðarskilmála, þó innan eðlilegra tímamarka. Ef að til úrlausnar ábyrgðar kemur,
er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa.
Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni.
- Persónuvernd
Farið er með allar persónuupplýsingar sem seljandi móttekur sem algjört
trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu.
Kaupanda gefst hins vegar kostur á að fá send tilboð í tölvupósti og mun seljandi þá
aðeins nota þær upplýsingar sem til þess þarf s.s. póstfang.