Your cart is currently empty!
- Hvað eru vafrakökur?
Vafrakökur eru smáar textaskrár sem eru geymdar í vafraranum þínum. Vafrakökur
eru notaðar í margvíslegum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsíðna, til
greiningar á notkun vefsíðna og til að beina auglýsingum til ákveðinna hópa eða
einstaklinga. Vafrakökur geta innihaldið texta, númer eða upplýsingar eins og
dagsetningar, en þar eru engar persónuupplýsingar um notendur geymdar. - Notkun Icephone ehf á kökum
Með því að samþykkja skilmála Icephone ehf um notkun á vafrakökum er Icephone
m.a. veitt heimild til þess að:
– Bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og
þjónustu við gestina til samræmis við auðkenninguna,
– Að gera notendum auðveldara að vafra um vefsvæðið, til dæmis með því að
muna eftir fyrri aðgerðum,
– Að þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn í notkun hennar,
– Að birta notendum auglýsingar
Icephone ehf notar einnig þjónustur frá þriðja aðila til að greina umferð um vefinn,
mæla virkni auglýsinga og til að birta gestum sérsniðnar auglýsingar. Til dæmis má
nefna Google Analytics frá Google og Facebook Pixel frá Facebook. Analytics og
Pixel safna upplýsingum nafnlaust og gefa skýrslur um þróun á vefsvæðum án þess
að greint sé frá stökum notendum eða persónuupplýsingum. Google Analytics og
Facebook Pixels notar sínar eigin kökur til að fylgjast með samskiptum gesta við
vefsvæði. Á grundvelli þess áskilur Icephone ehf sér rétt til að birta notendum
auglýsingar í gegnum endurmarkaðssetningarkerfi þessara þriðju aðila. - Geymslutími
Kökur frá Icephone ehf eru geymdar í allt að 24 mánuði frá því að notandi heimsækir
vefsvæði okkar. - Slökkva á notkun á kökum
Notendur geta og er ávallt heimilt að stilla vafrann sinn þannig að notkun á kökum er
hætt, þannig að þær vistast ekki eða vefvafrinn biður um leyfi notenda fyrst. Slíkar
breytingar geta dregið úr aðgengi að tilteknum síðum á vefsvæðinu eða vefsvæðinu í
heild sinni og getur haft neikvæð áhrif á heildarvirkni.
Notendur geta einnig stillt og stýrt vafrakökum sínum á Icephone ehf með því að
smella á tannhjól sem er sýnilegt á vefsíðunni. - Meðferð Icephone ehf á persónuupplýsingum
Þegar þú notar vefviðmót okkar söfnum við jafnframt persónuupplýsingum með
vefkökum (e. cookies), IP-tölum og öðrum upplýsingum tengdum tækinu sem þú
notar (s.s. gerð vélbúnaðar, útgáfu stýrikerfis o.þ.h.). Þú getur valið hvort þú kýst að
gefa okkur þessar upplýsingar.
Notuð tæki: þegar þú afhendir okkur notað tæki til endursölu eða eyðingar, eða tæki
sem þú hefur haft að láni til skemmri tíma, getur verið að þú hafir skilið eftir
persónuupplýsingar í tækinu. Við notum viðurkenndan hugbúnað til að hreinsa út öll
gögn af notuðum tækjum og þar með þær persónuupplýsingar sem kunna að vera til
staðar.