Your cart is currently empty!
Ég er sennilega fyrst og fremst fórnarlamb eigin heimsku en tölvuþrjótar komu einnig við sögu og skyndilega var síminn minn fullur af alls kyns forritum og varla nothæfur. Ég kom við í Icephone og var afar vel tekið. Síminn var lagaður á meðan ég beið. Ungur maður sem greinilega kunni til verka sýndi mér það sem hann var að gera og tryggði þannig að ekki færi út eitthvað sem hefði gildi fyrir mig. Í stuttu máli einstök þjónusta sem var innt af hendi með fagmennsku og ljúfmannlegri framkomu. Takk fyrir mig.




